föstudagur, janúar 16, 2004
Kallinn bara mættur aftur!
Jæja þá er nýtt ár gengið í garð og nýtt blogg-tímabil hafið... kannski ágætt að reyna að standa sig aðeins betur á því nýja. Fyrsta skólavikan búin og mikið verið lært þessa dagana. Það er skemmtilegt frá því að segja að ég er í áfanga sem heitir lífsleikni-námstækni. Í fyrsta tímanum vorum við látin skrifa á blað upplýsingar t.d. nefna tvær fyrirmyndir okkar og að sjálfsögðu skrifaði ég nafn forvera míns sem hetja... Jón Sigurðsson FRELSISHETJA ÍSLANDS!!!
Ég átti afmæli ekki alls fyrir löngu og var haldið upp á það með því að kaupa sér Family Guy - þriðju seríu á DVD... mikil snilld. Svo sat maður bara með kók í annarri og fjarstýringuna í hinni í nýja hægindastólnum sem ég fékk í afmælisgjöf og horfði á Family Guy.
Fékk líka nýlega Championship Manager og hef verið að dunda mér solldið í honum síðustu dagana.
Bráðum byrjar Idolið og Svínasúpan og verður horft á það með kók í annarri og hmmmmm... eitthvað í hinni. Ég vona að Jón Sigurðsson, nafni hetjunnar, vinni þetta því hin tvö eru leiðinleg. Svo sér maður bara til hvað maður gerir seinna í kvöld, kannski Family Guy, kannski Champ, kannski jafnvel bíómynd eða eitthvað annað??

fimmtudagur, desember 11, 2003
Partý?
Jæja þá eru prófin búin og glatt er á hjalla. Það er skemmst frá því að segja að þau gengu framar vonum og gott er af því að vita að þau próf sem ég var hvað hræddastur um (stærðfræði og jarðfræði) hef ég staðist með miklum ágætum. Tók stærðfræðina létt... í annarri tilraun.
Ég fór á tónleika í gær... já Muse. Það var gaman... geggjað... mergjað stuð. Ég var þar í góðra manna hópi en týndi hópnum ansi snemma. Ég var ekki lengi að koma mér sem næst sviðinu í blóð, svita og tár. Slagsmál brutust út mjög snemma og ég náði nokkrum góðum höggum... þið hefðuð átt að sjá hinn gaurinn maður! Tónleikarnir náðu algjöru hámarki þegar bandið tók hið stórkostlega lag Stockholm Syndrome og sex risastórar blöðrum skoppuðu yfir áhorfendur. Á þeim tímapunkti var ég reyndar búinn að koma mér þægilega fyrir aftast í salnum og fylgdist með sýningunni.
Þar sem prófin eru nú yfirstaðin væri annað ekki eðlilegt nema að skemmta sér ásamt hópi vina um helgina... en ég verð að vera soldið afbrigðilegur í þetta skiptið því ég er að fara að keppa um helgina. Some other time
Jæja ætli þetta sé ekki bara komið gott... ég vil ekki hafa þetta of langt því þá nennir enginn að lesa þetta. TaTa

föstudagur, nóvember 28, 2003
Þrífarar
Já frumraun mín í þrífara-iðnaðinum hefur nú litið dagsins ljós og glöggir lesendur taka kannski eftir því að einn þeirra er þeldökkur... það lýsir að sjálfsögðu engu nema snilld minni sem þrífara-byggingamanni
Þrífararnir að þessu sinni eru ekki af verri endanum, en það eru þeir:
Jóhann Björnsson; stórstjarna í knattspyrnu og leikur með stórliði Kópavogs
Hernan Crespo; einnig stórstjarna í knattspyrnuiðkun en hann spilar með stórliði Lundúna
Og síðast og síst Outkast sem er rappari
Sárlega móðgaður!
Ég var rétt í þessu að lesa þetta blogg hérna, og þar var linkur inn á RollingStones.com þar sem verið var að telja upp 500 bestu plötur allra tíma. Ég fór svona aðeins að rýna í þennan lista og áttu underground-sveitin Bítlarnir, eins og Valur kaus að kalla þá, nokkrar plötur þarna efst á lista. En svo fór ég að leita að mínum svona uppáhalds plötum og ég varð ekki aðeins hneykslaður heldur móðgaður, og sár! (ég veit að þið haldið að ég sé að fara að væla útaf því að Metallica-menn voru ekki hátt skrifaðir, en nei) mín önnur uppáhalds plata í heiminum var ekki nema í 247. sæti! og það er platan Automatic for the People með hljómsveitinni REM... sú plata er náttúrulega ekkert nema tær snilld og fær karlmenn (like myself) til að gráta. Ég er sárlega móðgaður og ég veit að það eru fleiri þarna úti sem eru á sömu skoðun og ég!
Þess má til gamans geta að Metallica átti plötu ofar á listanum, og það skemmtilega við það var, að sú plata er EKKI platan Metallica (Black Album eins og hún er oft kölluð) heldur var það Master of Puppets... rokkið lifir!!!
Lifi byltingin!!!

Wonderful Day
Hingað til er dagurinn í dag búinn að vera ýkt frábær...
Vaknaði kl. 06:15 til að fara á æfingu sem var gaman
Fór í skólann beint eftir æfingu kl. 08:00 sem var stuð
Fór í minn fyrsta tíma kl. 10:00, eða réttara sagt munnlegt próf í ensku sem var alsæla
Fór heim kl. 12:40 sem var skemmtilegt
Fór til augnlæknis kl. 15:00 sem var hressandi
Fór heim og horfði á Seinfeld sem var til þess að toppa frábæran dag
Djöfull verður nú gaman í kvöld þegar ég fer bara kannski að læra eða eitthvað!!!
Hver einasti maður deyr, en það lifa ekki allir menn

laugardagur, nóvember 22, 2003
Góða helgi
Góða kvöldið góðir gestir.
Ég vil bara byrja á að óska ykkur góðrar helgar og farsæls mánudags.
Í gær fór ég í bíó með góðvini mínum honum Alberti. Já mikið þykir mér Matrix myndirnar vera ofmetnar myndir. Ég fór í gær að sjá þá síðustu, nokkurnvegin vegna þess að ég varð að sjá hana. Þar sem maður hefur nú eytt tíma sínum í að horfa á hinar tvær, og líka vegna þess að sú fyrsta var alls ekki svo slæm. En mér finnst allavega ekkert varið í hinar tvær, kannski vegna þess að ég skildi eiginlega ekkert í þeim...
Á leiðinni heim úr bíó sáum við eitthvað það skelfilegasta sem ég hef á ævi minni séð. Við vorum að beygja niður afleggjarann heima hjá mér og inni í strætóskýlinu sat geðveikt skuggalegur náungi. Þetta snart mig svo vegna þess að ég var að hugsa um það áður en ég leit inn í skýlið hvað það væri krípí ef það væri einhver þar inni... úhúhúhú... múúhahahaha...
Í dag vaknaði ég um kl. 12:00, en þá fékk ég SMS frá góðbróður mínum honum Vésteini. Þá var hann kominn á The Theater of Dreams (Old Trafford) heimavöll Man. Utd. Skemmtilegt það og fór ég þá að horfa á leikinn sem var við Blackburn og unnu mínir menn að sjálfsögðu 2-1. Og það er líka skemmtilegt frá því að segja að á þessum leik var slegið met í úsvalsdeildinni í áhorfendafjölda á einum leik... það var allt bróður mínum að þakka!!
Þegar leikurinn var búinn fórum við góðvinur minn hann Albert saman í Kringluna. Við fengum okkur Boozt sem er snilld... hollt og gott!!! En þegar við vorum búnir með Booztin okkar ákváðum við að nóg væri komið af hollustunni og fórum því í Hagkaup í Smáralindinni. Þar fórum við í Nammilandið, sem er snilld, og keyptum 900 gr. af blandípoka... og það var 50% afsláttur!! kostaði aðeins 628 kr.!!! snilld. Ætlum svo á eftir í partý með nammið okkar.
ps. ég held að allt skinn sé að flagna af mér! fann hart, dautt skinn á rúminu mínu áðan sem ég komst að að væri af tánni á mér... fyrst gaurinn í strætóskýlinu og svo þetta!!! ég ætla aldrei að fara að sofa aftur!

fimmtudagur, nóvember 13, 2003
Skandall!
Einn mesti skandall í sögu Fjölbrautaskólans í Breiðholti átti sér stað á Nasa í gærkvöld. Söngvakeppni skólans fór þar fram við fyrir framan fullan sal áhorfendahvaðan af ú FB.
Keppnin hófst á gömlu íslensku lagi sem allir ættu að kannst við og heitir Krummi svaf í Klettagjá, en lagið hafði verið fært yfir í rokk-búning sem kom alveg stórkostlega vel út. Sigurlagið? NEI! SKANDALL!!! Sigurvegarinn var einhver blindfull busastelpa sem söng meira að segja svo lágt að ég heyrði ekki hvort hún hafi sungið réttan texta (ekki það að ég þekki textann við lagið).
Þetta var örugglega einhver klíkuskandall... hún er örugglega í sömu klíku og dómararnir! Hvernig væri að athuga það?
Já ég er vonsvikinn því ég hefði viljað sjá þá Jón Ingvar og Magga eða hana Tobbu í topp 3 sætunum... því endurtek ég orð mín frá því áðan: SKANDALL!!!
En þessi keppni var nú ekki alslæm því ég sá eitthvað það fyndnasta sem ég hef nokkru sinni séð á mínum 18 árum... þannig er nefninlega mál með vexti að góðvinur minn hann Albert var fenginn upp á sviðið til þess að taka þátt í skemmtiatriði. Kynnarnir fengu líka stelpu úr salnum til þess að taka þátt... þessi "stelpa" var eldri en mamma mín!!! og þau voru látin kyssast!!! og það fyndnasta var að Albert var algjörlega tilbúin til að kyssa hana en hún var hinsvegar ekki jafn tilbúin (örugglega harðgift kona og ég skil ekkert í henni að vera að bjóðast til að fara upp á sviðið). Nei, möguleikar Alberts á að vera með ELDRI konu farnir í vaskinn... en örvæntu ekki kæri vinur, þú getur örugglega nælt þér í eina eldri konu.
Ég kveð að sinni
* * ( ' ""() Bye (þetta lærði ég á MSN)
* ("( 'o', ) bye (helvíti sniðugt þetta MSN maður)
* (")(")(,,) * *
ps. starfsfólkið í mötuneytinu hefur snúist gegn okkur... við höfum komið á okkur ljótu orði innan ræstitækni-félaganna!!! what are we going to do!!??!!?!?!?!! aaaaaahhhhhhhhhhhh!!!!!!

laugardagur, nóvember 08, 2003
Ég hata Arsenal!!!
Spurning dagsins: Er til sá enski bakvörður sem er ekki fífl?
Ashley Cole, Danny Mills, Neville-bræðurnir... allir algjörir asnar! Mikill og glæsilegur hópur asna þessir bakverðir